Færsluflokkur: Dægurmál

Sumarfrí í Reykjavík

Það er ótrúlega fínt að vera í sumarfríi í Reykjavík þegar veðrið er eins og það hefur verið síðustu vikurnar. Það eru nokkrir hlutir sem ég held að hinn almenni Reykvíkingur sé að láta algjörlega framhjá sér fara;

  • Fiskur í ostabúðinni á skólavörðustíg í hádeginu
  • Fiskur úr fylgifiskum á grillið! Þorskur í bananalaufi er snilld
  • Hrefnuspjót og humarsúpa hjá Sægreifanum
  • Bjór í garðinum á Sirkús
  • Rúgúlapizza með speltbotni á Reykjavík Pizza Company

Annars er í raun komið nóg af Reykjavík í bili.. ætla skreppa norður og skoða bruggverksmiðjuna Kalda og fá mér síðan að borða á veitingarstaðnum Brekku í Hrisey! held að það verði algjör snilld, en mun örugglega ekki endast neitt sérstaklega lengi í rigningunni á Akureyri!

Sá þessa mynd á leiðinni út í Krambúð í fyrradag.. áhugavert;
Athugið!

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband